HomeFréttirHaukur: Tel að Evrópa henti mér betur

Haukur: Tel að Evrópa henti mér betur

 
Annar af tveimur nýliðum A-landsliðs Íslands, Haukur Helgi Pálsson, hefur ákveðið að segja skilið við fullan skólastyrk hjá bandaríska háskólanum Maryland og reyna fyrir sér í atvinnumennskunni í Evrópu. Haukur er vel þekkt stærð í Evrópu og síðustu ár hafa mörg lið í álfunni sýnt honum mikinn áhuga en Bandaríkin urðu fyrir valinu á sínum tíma. Nú er komið annað hljóð í kappann, Evrópa næst á dagskrá.
,,Alltaf þegar ég spila í Evrópu finnst mér það skemmtilegra en í Bandaríkjunum, stíllinn í Evrópu er skemmtilegri og boltinn er meiri alhliða en í Ameríku og því tel ég að þetta henti mér betur,“ sagði Haukur Helgi í samtali við Karfan.is
 
Gary Williams hætti þjálfun Maryland að lokinni síðustu leiktíð en sú staðreynd gerði ekkert útslag hjá Hauki:
 
,,Nú er kominn annar þjálfari en ákvörðun mín hefur ekkert með það að gera, vissulega er leiðinlegt að Gary skyldi hætta enda fór ég til Maryland til að spila fyrir hann,“ sagði Haukur sem er í viðræðum við nokkur lið.
 
,,Þetta eru lið á Spáni, Ítalíu og í Þýskalandi, liðin hafa áhuga en það er ekkert pottþétt,“ sagði Haukur og vildi ekki gefa upp að svo stöddu um hvaða lið væri að ræða. Gríðarlegir fjármunir liggja í fullum skólastyrk við skóla eins og Maryland þar sem Haukur dvaldi við nám og körfuknattleik á síðustu leiktíð, nú er það úr myndinni með þessari ákvörðun.
 
,,Það hefði verið gott að fá námið en ég hef ákveðið að fara til Evrópu og set þá bara til hliðar fyrir námi í framtíðinni en ætla að feta atvinnumannabrautina núna,“ sagði Haukur sem er með umboðsmenn að vinna í sínum málum þessi dægrin.
 
Fréttir
- Auglýsing -