Haukur Helgi Pálsson og lið hans Rouen höfðu betur í leik gegn Charleville Mézieres en Martin Hermannsson leikur með því liði.
Martin og félagar voru sterkari aðilinn framan af en ævintýralegur endasprettur Rouen þar sem liðið vann síðustu fimm mínúturnar 24-8 og unnu ótrúlegan sigur.
Haukur Helgi var með 11 stig, 5 stoðsendingar og 3 fráköst í leiknum. Auk þess fiskaði hann fimmtu villuna á Martin sjálfan og setti körfu í andlitið á honum í upphafi endurkomu Rouen í leiknum.
Martin var einmitt í ótrúlegum villuvandræðum og lék ekki nema 25 mínútur en Charleville tapaði með 23 stigum þær mínútur sem Martin lék ekki inná. Þjálfari Rouen Valin sagði einmitt í viðtali eftir leik að brotthvarf Martins hefði gert gæfumuninn. Við það hefðu leikmenn hans fengið trúnna og sótt sigurinn.
Charleville tapaði þar með fimmta leik sínum í röð og virðist vera að missa af lestinni í toppbaráttunni og gætu endað mun neðar ef þeir halda áfram á þessu skriði því það munar einungis tveimur sigrum á 3-9 sæti deildarinnar. Rouen er að klífa upp töfluna eftir sigurinn og er í 13 sæti.
Helstu tilþrif úr leiknum má finna hér.




