Haukur Helgi Pálsson var í byrjunarliði Maryland um helgina þegar liðið vann nauman sigur á Clemson 79-77 á heimavelli sínum College Park frammi fyrir rúmlega 17 þúsund manns! Þetta var í fyrsta sinn sem Haukur kemst í byrjunarlið Maryland og vel að merkja það á sínu fyrsta ári!
Haukur lék í alls 12 mínútur og skoraði 3 stig, tók 2 fráköst og gaf 1 stoðsendingu og nýtti skotin sín vel, setti niður eina þristinn sem hann tók en brenndi af einu teigskoti. Jordan Williams var enn eina ferðina atkvæðamestur í liði Maryland með 16 stig og 11 fráköst.
Þetta hafði Gary Williams þjálfari Maryland að segja um veru Hauks í byrjunarliðinu:
"I just thought Hawk would give us energy at the start of the game," Williams said. "We had 36 hours since the end of the Virginia Tech game to figure out a way to get things fired up a little bit."
(Ég taldi að Haukur myndi gefa okkur orku í upphafi leiks, við höfðum 36 klukkustundir eftir Virginia Tech leikinn til að átta okkur á því hvernig ætti að kveikja upp í liðinu).
Með sigrinum um helgina hefur Maryland unnið tvo af fyrstu fimm leikjum sínum í ACC riðlinum.




