Haukur Helgi Pálsson og liðsfélagar í bandaríska háskólaliðinu Maryland hefja árið 2011 með látum en liðið mætti Colgate skólanum í nótt. Óhætt er að segja að strákarnir hjá Colgate hafi verið ,,tann”-burstaðir í College Park á heimavelli Maryland. Lokatölur 95-40 þar sem Haukur Helgi lék í 10 mínútur.
Í síðari hálfleik lenti Haukur í samstuði í baráttu um lausann bolta og fékk fyrir vikið skurð á hægri augabrún. Vígalegur að sjá á meðfylgjandi mynd. Haukur skoraði 7 stig í leiknum, gaf 2 stoðsendingar, stal 1 bolta og tók 1 frákast.
Næsti leikur Maryland er þann 9. janúar og gegn engu öðru liði en Duke skólanum á heimavelli Duke í Durham.




