spot_img
HomeFréttirHaukasigur á Ásvöllum

Haukasigur á Ásvöllum

Haukar unnu sinn annan leik í röð þegar Fjölnismenn komu í heimsókn á Ásvelli í kvöld. Haukar héldu sæti sínu í deildinni eða því fimmta en Fjölnir lúrir í því 10. jafnt af stigum og Hamar. Þrátt fyrir fína byrjun gestanna þá dugði það ekki gegn vörn Hauka sem hrökk í gang í öðrum leikhluta og sigruðu heimamenn með 16 stigum 91-75.
Fjölnismenn voru duglegir að keyra í bakið á Haukamönnum í fyrsta leikhluta og refsuðu rauðum grimmt fyrir léleg skot. Trekk í trekk voru Fjölnismenn komnir fyrstir upp völlinn og áttu Haukamenn í erfiðleikum með að verjast Fjölnispjökkum í hornunum en þar voru þeir jafnan galopnir og fengu mikið af fríum skotum. Fjölnir leiddi með fimm stigum eftir fyrsta leikhluta og var fátt í leik Hauka sem gaf til kynna að þeir myndu bíta frá sér.
 
Fjölnismenn héldu uppteknum hætti í byrjun þess annars en þá skiptu Haukar yfir í svæðisvörn og leikur liðsins breyttist til muna. Mikil barátta braust fram í heimamönnum og náðu þeir að loka vel á skyttur Fjölnis. Algjör viðsnúningur varð á leiknum og fóru rauðir inn í leikhléið með níu stiga forskot, 47-38.
 
Haukar gjörsamlega eignuðu sér leikinn í seinni hálfleik. Leikur Fjölnis var engan vegin jafn beittur og í upphafi leiks og nýttu Haukar sér það. Munurinn var fljótlega kominn upp í 15 stig og seinna munaði 21 stigi á liðunum. Þriðji leikhluti var algjörlega eign Hauka en allt hrökk í baklás hjá heimamönnum í fjórða leikhluta og náðu Fjölnismenn að naga muninn niður í 10 stig.
 
Það var farið að fara um stuðningsmenn Hauka því í dágóða stund hafði ekki komið karfa frá liðinu og skipti í raun engu hvaðan skotin komu. Menn klikkuðu úr einföldum skotum til dæmis af vítalínunni og í raun virkaði líkt og Fjölnismenn höfðu sett lok á hringinn hjá sér. Eins og hendi væri veifað rönkuðu Haukamenn við sér og keyrðu muninn aftur upp í ein 18 stig og að endingu sigruðu Haukar með 16 stigum 91-75.
 
Haukur Óskarsson lét mikið fyrir sér fara í sókn Hauka og skoraði 21 stig. Komu 18 af þeim úr þriggja stiga skotum og var strákurinn sjóðheitur fyrir utan línuna. Semaj Inge fór einnig mikinn í liðin Hauka og var stigahæstur þeirra með 30 stig og fiskaði þar fyrir utan 10 villur. Gerald Robinson var með 22 stig og 13 fráköst.
 
Hjá Fjölni var Brandon Springer með 18 stig og 11 fráköst, Magni Hafsteinsson með 15 stig og 12 fráköst og Ægir Þór Steinarsson með 10 stig og 7 stolna bolta og í raun voru þessir þrír menn þeir einu með réttu róli allan leikinn hjá Fjölni.
 
Mynd / Semaj Inge átti frábæran leik fyrir Hauka gegn Fjölni
 
 
Fréttir
- Auglýsing -