spot_img
HomeFréttirHaukar úr fallsæti eftir sigur á Snæfell

Haukar úr fallsæti eftir sigur á Snæfell

Haukar lyftu sér úr fallsæti eftir öruggan 102-83 sigur á Snæfelli þegar liðin mættust í Hafnarfirði í kvöld. Ljóst var frá fyrstu mínútu að Haukaliðið ætlaði sér sigur í leiknum en Snæfellingar létu þá hafa rækilega fyrir hlutunum. 

 

Haukar lyftu sér úr fallsæti eftir öruggan 102-83 sigur á Snæfelli þegar liðin mættust í Hafnarfirði í kvöld. Ljóst var frá fyrstu mínútu að Haukaliðið ætlaði sér sigur í leiknum en Snæfellingar létu þá hafa rækilega fyrir hlutunum.

 

Leikurinn var nokkuð kaflaskiptur fram í þriðja leikhluta en Haukar byrjuðu leikinn af krafti og komust snemma 16 stigum yfir. Snæfellingar bitu þá rækilega frá sér og minnkuðu muninn áður en Haukar náðu aftur nokkuð góðum mun og fóru með 16 stig inn í leikhléið, 52-36.

 

Snæfellingar byrjuðu með miklum látum í seinni hálfleik og tóku 1-14 sprett og minnkuðum muninn í þrjú stig. Haukamenn rönkuðu þá við sér, bættu aðeins og gerðu endanlega út um leikinn í fjórða leikhluta. Það var allt annar bragur, sóknarlega, á Haukaliðinu sem unnu síðast leik fyrir sléttum mánuði síðan. Fimm leikmenn liðsins skoruðu 10 stig eða meira og mestu munaði um 20 stigin sem Hjálmar Stefánsson kom með af bekknum fyrir Haukaliðið.

 

Snæfellingar eru enn án sigurs og náðu ekki að nota „stóra skíðamálið“ til að mótivera sig og sækja sinn fyrsta. Christian Covil var flottur fyrir Snæfellinga með 29 stig og 9 fráköst.

 

 

Tölfræði leiksins

 

Umfjöllun / Emil Örn Sigurðarson

Myndir / Bára Dröfn

Fréttir
- Auglýsing -