Haukar lögðu Val að velli, 90–85, í hörkuleik í Bónus deild kvenna í N1-höllinni á Hlíðarenda í kvöld.
Með sigrinum lyftu Haukar sér upp í 4. sæti deildarinnar með fjögur stig og jöfnuðu Val, sem fellur niður í 7. sætið á lakari stigatölu, en bæði lið hafa unnið tvo leiki og tapað tveimur eftir fjórar umferðir.
Haukar byrjuðu betur og leiddu með sjö stigum eftir fyrsta leikhluta, 29–22, en heimakonur svöruðu fyrir sig í öðrum leikhluta og minnkuðu muninn í eitt stig fyrir leikhlé, 50–49.
Valur hélt áfram að sækja í þriðja leikhluta, náði forystunni og komst sex stigum yfir snemma í fjórða leikhluta. Gestirnir úr Hafnarfirði reyndust hins vegar sterkari á lokasprettinum, sneru leiknum sér í vil með öflugu áhlaupi og unnu fjórða leikhlutann 23–14.
Jadakiss Nashi Guinn fór fyrir liði Hauka og var nálægt þrennu með 28 stigum, 7 fráköstum og 9 stoðsendingum. Eloise Stéphanie Pavrette átti sömuleiðis flottan leik með 21 stigi og 6 fráköstum, Sigrún Björg Ólafsdóttir skoraði 12 stig og tók 6 fráköst og Tinna Guðrún Alexandersdóttir skilaði 11 stigum. Rósa Björk Pétursdóttir skoraði 9 stig og Sólrún Inga Gísladóttir tók 8 fráköst og skoraði 6 stig.
Hjá Val var Þóranna Kika Hodge-Carr stigahæst með 26 stig og 4 fráköst. Alyssa Marie Cerino átti öfluga tvennu með 20 stigum og 10 fráköstum, Dzana Crnac skilaði 18 stigum og 9 fráköstum og Reshawna Rosie Stone skoraði 10 stig og gaf 5 stoðsendingar. Sara Líf Boama bætti við 8 stigum og 4 fráköstum og Marlee Ann Ball skoraði 3 stig.




