spot_img
HomeFréttirHaukar sigruðu Keflavík er bekkurinn þeirra fór hamförum

Haukar sigruðu Keflavík er bekkurinn þeirra fór hamförum

Haukar og Keflavík mættust í kvöld í 9. umferð Dominosdeildar kvenna í Schenkerhöllinni. Keflavík voru að koma úr góðum sigurleik á móti Stjörnunni í seinustu umferð á meðan að Haukar töpuðu á móti Snæfelli.
Það fór þó þannig að þær víxluðu hlutverkum fyrir næstu umferð því Haukar fóru með 69-61 sigur af hólmi sem er merkilega lítill miðað við gríðarlegan mun í fráköstum, en nánar að því síðar.

 

 

Helena Sverrisdóttir byrjaði leikinn mjög ákaft fyrir Haukanna þar sem hún skoraði fyrstu tvær körfur leiksins og lagði þar með línuna fyrir kvöldið, passið ykkur á mér, ég ætla að vera í stuði í kvöld. Það var hún aldeilis en hún skoraði 10 stig í fyrsta leikhlutanum og endaði á því að setja 23 stig, 16 fráköst, 9 stoðsendingar og 5 stolna bolta.
Þrátt fyrir þessa ákveðnu byrjun Helenu þá var fyrsti leikhlutinn í rólegri kantinum og töpuðu liðin þó nokkrum boltum á fyrstu fimm mínútunum, Haukar þremur og Keflavík 5.
Keflavík lét það þó ekki á sig fá og hélt í við Haukanna alveg þangað til það voru þrjár mínútur eftir af leikhlutanum en þá þurfti Marín Laufey Davíðsdóttir að smella sér á tréverkið vegna villu vandræða, en hún var komið með þrjú kvikyndi strax á þeim tímapunkti. Þannig Haukarnir leiddu 17-13 eftir fyrsta leikhlutann.
Villuvandræði Marínu áttu eftir að há henni og Keflavík það sem eftir lifði leiksins en hún lék aðeins rétt rúmar 10 mínútur í leiknum sökum þeirra. 

 

Haukarnir byrjuðu annan leikhlutann betur en það glóðnaði heldur betur í glæðum Keflvíkinga þegar Sandra Lind Þrastardóttir neitaði Maríu Lind Sigurðardóttur heiftarlega um sniðskot er hún varði boltann útaf vellinum. Varða skotið leiddi til þriggja stiga kafla hjá Keflavík þar sem Guðbjörg Björt Júlíusdóttir skoraði og fékk víti að auki sem hún nýtti sér til hins ítrasta. Keflavík virtust vera komast á gott skrið en Haukastúlkur voru ekki sammála því og tóku á rás og skoruðu 8 stig án mótsvars. Þar af einn þrist sem Pálína María Gunnlaugsdóttir setti niður eftir stoðsendingu frá Sylvíu Rún Hálfdanardóttir sem af einhverjum óskiljanlegum ástæðum ákvað að gefa boltan á Pálínu fyrir utan þriggja þegar hún var komið með sniðskotið og örugga körfu beint fyrir framan sig. Hún hafði þó rétt fyrir sér og Haukarnir nældu sér í 3 stig í stað tveggja.
Melissa Zorning, einn af þremur ljósum punktum Keflvíkinga í leiknum, reyndi hvað hún gat til að minnka muninn en hún var of mikið ein að verki og gat það ekki ein þannig að Haukarnir bættu bara í og leiddu þæginlega 40-25 í hálfleik.
Haukarnir voru ekki aðeins með yfirburði í stigaskorun en þær voru gjörsamlega að valta yfir Keflavík í fráköstum þar sem þær voru með 34 á móti 15 í hálfleik. Keflavík tóku sig aðeins saman í andlitinu í frákastadeildinni í seinni hálfleik en töpuðu samt þeirri baráttu 56-38 í leiknum. Haukarnir tóku nánast alltaf sóknarfrákast eftir misheppnaða skottilraun en þær tóku 20 fleiri skot og voru næstum því með 20 fleiri sóknarfráköst en Keflavík. Eini leikmaður Keflavíkur með einhverja rænu í fráköstunm var Sandra Lind, en hún var því miður ekki með rænu í sóknarleiknum í staðinn, en hún skoraði aðeins 4 stig í 12 skottilraunum og munaði um minna fyrir suðurnesjastúlkurnar.

 

Þær blákæddu voru þó ekki alveg tilbúnar að leggja árar í bát og yfirspiluðu þær Hauka 10-4 á fyrstu mínútum þriðja leikhluta þar sem Melissa var með 7 þeirra. Þegar heimastúlkur  ætluðu að gera sig líklegar til að komast aftur í takt við leikinn þá komu hinir ljósu punktarnir í liði Keflvíkinga sterklega til sögu en þær Thelma Dís Ágústsdóttir og Emelía Ósk Gunnarsdóttir skoruðu þær sitthvor 3 stigin, Thelma með þrist og Emelía með körfu og víti. Haukarnir í bullandi vandræðum með svæðisvörn Keflvíkinga á þessum tímapuknti í leiknum og staðan orðin 48-43.
Þá fór Sylvía Rún Hálfdanardóttir í gang fyrir Haukanna og setti hún 2 langa tvista í röð, en hún steig á þriggjastigalínuna í bæði skiptin, en það gerði Pálína hins vegar ekki og átti hún einn þrist í þessum 9-3 kafla Hauka til að slútta þriðja leikhlutanum.

 

Það tók Haukanna tvær mínútur til að komast á blað í fjórða leikhlutanum en þá fóru þær á fleygiferð og eftir 10-0 kafla voru þær komnar 19 stigum yfir í stöðunni 67-48 á aðeins þremur mínútum. Flestir búnir að afskrifa Keflavík þegar þarna var komið við sögu en Melissa var á öðru máli og fór hún fyrir Keflavík næstu mínútrnar þar sem hún skoraði 7 stig á 9-0 áhlaupi þeirra og staðan var orðin 67-59 með eina og hálfa mínútu eftir. Það var bara ekki nóg og Haukum tókst að stöðva Melissu og þar með Keflavíkurliðið og tryggja sér sigurinn.

 

Tölfræði
Myndasafn eftir Davíð Eld

Fréttir
- Auglýsing -