HomeBónus deildinBónus deild kvennaHaukar settu 115 stig á Njarðvík og tylltu sér á toppinn

Haukar settu 115 stig á Njarðvík og tylltu sér á toppinn

Haukar jöfnuðu í kvöld Njarðvík á toppi Bónusdeildar kvenna með öflugum útisigri í IceMar-Höllinni í Njarðvík.

Með sigrinum í kvöld náðu Haukar betri innbyrðisstöðu gegn Njarðvík en liðin eru núna bæði með 28 stig á toppi deildarinnar. Lokatölur í kvöld í miklum stigaleik 98-115 og Haukar urðu í kvöld það lið sem skorað hefur mest á Njarðvík í vetur í einum leik og eina liðið til að rjúfa 100 stiga múrinn gegn þeim grænu. 

Njarðvíkingar mættu með læti í upphafi leiks og komust í 11-0. Ljónynjurnar sýndu tennurnar en Haukar settu heldur betur skán á brosið þeirra með sinni eigin rispu og lokuðu leikhlutanum 21-30 eða 10-30 viðsnúningur á fyrstu 10 mínútum leiksins. Ekki á vísan að róa í þessu sporti. Dani með 13 hjá Njarðvík í fyrsta en Amandine 11 hjá Haukum. Sólrún Inga kom líka flott af bekk Hauka í fyrsta með 8 stig, þar af tveir sterkir þristar eins og henni einni er lagið. 

Bæði lið voru meira á sóknarlínunni í fyrri hálfleik, staðan 57-59 fyrir Hauka í hálfleik. Njarðvík marði annan leikhluta því 36-29 þar sem Dinkins tók við sér hjá Njarðvík og var með 13 í hálfleik en Amandine komin í 16 í liði Hauka. Sem fyrr voru Haukar að spila vörn allan völl og Tinna Guðrún fékk 3 villur í fyrri hjá Haukum og eina í svona teljandi villuvandræðum. 

Í það heila fjörugur leikur en það þarf svo sem engan Nóbelsverðlaunahafa í eðlisfræði til að átta sig á að bæði Einar og Emil höfðu líklega sitthvað að segja við sína leikmenn um varnarleik í hléinu. Það átti þó ekki eftir að liggja lengi hjá leikmönnum sem héldu áfram að moka inn stigum á töfluna í síðari hálfleik. 

Hafnfirðingar áttu fyrsta höggið í þriðja, komust í 64-75 eftir fjögurra mínútna leik. Reyndar náðu Haukar allt að 20 stiga forystu í leikhlutanum en heimakonur í Njarðvík náðu að naga þann mun niður í 75-88 og þannig stóðu leikar fyrir fjórða. Haukar komnir við stýrið á leiknum og búnar að skora í og við 30 stig í hverjum einsta leikhluta fram að fjórða. Sigrún Björg var að gera vel hjá Haukum í þriðja og komin með 13 stig. Dani fór á tréverkið undir lok þriðja hjá Njarðvík með fjórar villur og hvíldi sig fyrir lokasprettinn. 

Í fjórða voru Haukar áfram við stýrið, leiddu 90-99 þegar liðlega fjórar mínútur voru til leiksloka. Tinna Guðrún kom Haukum í 90-104 með þrist þegar rúmar þrjár mínútur lifðu leiks og Njarðvíkingar náðu ekki að ógna forystu gestanna sem að lokum fóru með sigur af hólmi 98-115. 

Amandine gerði 33 stig hjá Haukum og gaf 5 stoðsendingar, Krystal bætti við 26 og Tinna 15. Hjá Njarðvík var Dinkins með 29 stig og Dani 24. Njarðvík á tvo leiki eftir í A-hluta gegn KR og Val en Haukar mæta Grindavík og KR. 

Tölfræði leiks

Myndasafn (Gunnar Jónatansson)

Fréttir
- Auglýsing -