Dominos Deildin hófst í kvöld en Haukar voru rétt í þessu að leggja Stjörnuna 86 – 75 í Ásgarði. Leikurinn var sá fyrsti hjá nýliðum Stjörnunnar í úrvalsdeild. Helena Sverrisdóttir var stigahæst í liði Hauka með 35 stig en hjá Stjörnunni var Chelsie Schweers með 31 stig.
Leikurinn var jafn lengst framan af og skiptust liðin 7 sinnum á forystu. Haukar misstu Auði Írisi af velli strax í 1. leikhluta en hún meiddist á ökkla og gat ekki spilað meir. Eins og við var að búast reyndist erfitt að stoppa Helenu Sverrisdóttir í sókninni og hún setti niður 9 stig bara í 1. leikhlutanum. Það var gaman að sjá Margréti Köru aftur á parketinu en hún mætti af fullum krafti og virðist engu hafa gleymt. Leikhlutinn var einstaklega jafn en það voru Haukar sem kláruðu hann með 1 stigs mun, 23 – 22, eftir hraðaupphlaup á lokasekúndunum.
Í 2. leikhluta var strax farið að bóla á villuvandræðum en þá voru þrír leikmenn Stjörnunnar komnir með 3 villur og Sylvía Rún sat á bekk Haukanna einnig með 3 villur. Bryndís Hanna átti eftirminnilegasta skot leikhlutans en hún smellti niður einum risa þristi lengst fyrir utan línuna sem snerti nánast loftið á leiðinni í körfuna. Haukar sigruðu þennan leikhluta með 7 stigum og fóru því með 8 stiga forskot inn í hálfleik, 46 – 38.

Haukar réðu ekki eins vel við vörn Stjörnunnar í 3. leikhluta og Stjarnan sigraði þann leikhluta, 19 – 17. Haukar voru að spila á mun fleiri leikmönnum en Stjarnan en Stjarnan var eingöngu með 2 stig af bekknum allan leikinn. Haukar nýttu breiddina til að hvíla lykilleikmenn og þær sem voru helst til fljótar að næla sér í villur.
Það var 6 stiga munur á liðunum við upphaf 4. leikhluta. Hvíldin sem Haukakonur gátu fengið á bekknum var að skila sér og þær virtust bara eiga meira eftir til að klára leikinn. Á tímabili gekk flest allt upp hjá Haukum en ósköp lítið að frétta hjá Stjörnunni sem voru farnar að gefa eftir í vörn og frákastabaráttunni. Þegar 2 mínútur voru eftir að leiknum fór Jóhanna Björk Sveinsdóttir útaf með 5 villur eftir nokkuð undarlega sóknarvillu. Haukar unnu leikhlutann 23 – 18 og kláruðu leikinn með 11 stiga mun, 86 – 75. Helena Sverrisdóttir var einfaldlega lang besti leikmaðurinn á vellinum. Hún var með 35 stig, 15 fráköst, 7 stoðsendingar, 6 stolna bolta, 11 villur fiskaðar, setti 13 af 14 vítum og kláraði leikinn með 54 framlagsstig af 99 gefnum.
Stjarnan-Haukar 75-86 (22-23, 16-23, 19-17, 18-23)
Stjarnan: Chelsie Alexa Schweers 31/6 sto?sendingar, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 12, Margrét Kara Sturludóttir 11/11 fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 10/11 fráköst/4 varin skot, Hafrún Hálfdánardóttir 9, Bára Fanney Hálfdanardóttir 2/4 fráköst, Erla Dís ?órsdóttir 0, Gu?rún Edda Sveinbjörnsdóttir 0, Helena Mikaelsdóttir 0, Kristín Fjóla Reynisdóttir 0, Sigrí?ur Antonsdóttir 0, Kristbjörg Pálsdóttir 0.
Haukar: Helena Sverrisdóttir 35/15 fráköst/7 sto?sendingar/6 stolnir, Pálína María Gunnlaugsdóttir 13/7 fráköst, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 8/4 fráköst, María Lind Sigur?ardóttir 8/4 fráköst, Dýrfinna Arnardóttir 6, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 5/7 fráköst, Sólrún Inga Gísladóttir 4, Eva Margrét Kristjánsdóttir 4, ?óra Kristín Jónsdóttir 3, Magdalena Gísladóttir 0, Au?ur Íris Ólafsdóttir 0, Rósa Björk Pétursdóttir 0.




