Haukar verða með Keflavík, Njarðvík og Snæfell í úrslitakeppninni í Iceland Express deild kvenna þetta tímabilið eftir öruggan sigur á KR í hreinum úrslitaleik liðanna í Schenkerhöllinni. Fyrri háflleikur lofaði öllu fögru en Haukar gerðu út um leikinn í þriðja leikhluta. Tierny Jenkins fór fyrir Haukum í kvöld með 20 stig og 19 fráköst en KR-ingum var vandi búinn þar sem Sigrún Sjöfn Ámundadóttir meiddist eftir sjö mínútna leik og sást ekki meir eftir það.
Jafnræði var með liðunum allan fyrri hálfleikinn, KR leiddi þó 18-20 að loknum fyrsta leikhluta en hann kom ekki ókeypis því Sigrún Ámundadóttir var borin meidd af velli þegar um þrjár mínútur voru til loka leikhlutans og kom ekki meira við sögu í leiknum.
Varnarleikurinn var allsráðandi í öðrum leikhluta og eftir tæplega fimm mínútna leik leiddu KR-ingar 22-26. KR prófaði að vinda sér í svæðisvörn en Haukar tóku þá 5-0 áhlaup sem lauk með körfu Jenkins í teignum eftir sóknarfrákast og fékk hún vítaskot að auki og breytti stöðunni í 27-26. Sitt hvor 4-0 demban kom hjá liðunum eftir þetta, KR byrjaði og 27-30 en Haukar kláruðu og leiddu 31-30 þegar blásið var til hálfleiks.
Tierny Jenkins var með 13 stig og 12 fráköst í hálfleik en það tók hana tæpar 17 mínútur að landa tvennunni í kvöld. Hjá KR var Erica Prosser með 13 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar.
Skotnýting liðanna í fyrri hálfleik:
Haukar: tveggja 32,1% – þriggja 16,6% – víti 100%
KR: tveggja 54,5% – þriggja 16,6 % – víti 75%
Vörn Hauka var þéttofin í síðari hálfleik og þær héldu uppteknum hætti frá lokum annars leikhluta og náðu samtals 12-0 áhlaupi áður en Erica Prosser skoraði fyrir KR og fékk villu að auki og minnkaði muninn í 41-33. Sóknir KR-inga máttu sín lítils gegn Haukavörninni, hik og stöku fát á röndóttum gerði Haukum þetta bara auðveldara. Jence Rhoads kom svo með sjö stig í röð fyrir Hauka sem lauk með þriggja stiga körfu og staðan 56-41 fyrir Hauka þegar þriðja leikhluta lauk.
Magnaður þriðji leikhluti Hauka gerði út um vonir KR og sigur heimakvenna var aldrei í hættu í fjórða leikhluta. Lokatölur reyndust 78-56 Haukum í vil sem hafa gengið í gegnum endurnýjun lífdaga eftir að félagið skipti út Hope Elam fyrir tvennutröllið Tierny Jenkins.
Haukar geta enn náð 3. sæti í deildinni, þær verða þá að vinna Hamar á útivelli á laugardag og Snæfell verður þá að tapa heima gegn Fjölni. KR tekur á móti deildarmeisturum Keflavíkur á laugardag þar sem Keflvíkingar fá deildartitilinn afhentan en KR kveður þá þetta tímabil. Óhætt er að segja að meiðsli hafi höggvið skörð í hóp KR þessa vertíðina en nú á meiðslalista eru þær Helga Einarsdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir.
Skotnýting liðanna í leiknum:
Haukar: tveggja 42% – þriggja 32% og víti 100% (16/16)
KR: tveggja 44% – þriggja 7% og víti 88% (15/17)
Heildarskor leiksins:
Haukar: Tierny Jenkins 20/19 fráköst/5 stolnir, Jence Ann Rhoads 15/9 stoðsendingar, Íris Sverrisdóttir 11, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 10/5 fráköst, María Lind Sigurðardóttir 10/6 fráköst, Guðrún Ósk Ámundardóttir 5/4 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 4, Auður Íris Ólafsdóttir 3, Sólrún Inga Gísladóttir 0, Sara Pálmadóttir 0, Inga Sif Sigfúsdóttir 0, Ína Salóme Sturludóttir 0.
KR: Erica Prosser 22/8 fráköst, Margrét Kara Sturludóttir 16/5 fráköst/3 varin skot, Hafrún Hálfdánardóttir 14/7 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 2, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 2/5 fráköst, Rannveig Ólafsdóttir 0, Ragnhildur Arna Kristinsdóttir 0, Sólrún Sæmundsdóttir 0, Kristbjörg Pálsdóttir 0, Helga Hrund Friðriksdóttir 0, Anna María Ævarsdóttir 0, Perla Jóhannsdóttir 0.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Sigmundur Már Herbertsson




