Haukarnir mættu með sópinn í Keflavík í kvöld og það stórann. Þær geymdu besta leik sinn fyrir þann síðasta, og það án Írisar Sverrisdóttur og Guðrúnu Ámundar, og hreinlega yfirspiluðu Keflavík á tímum og unnu mjög sanngjarnan sigur, 52-75. Í fremsta flokki var Jence Ann Rhoads sem fór á kostum í leiknum í kvöld og tók leikinn í sínar hendur á tímum. Hún endaði leikinn með 31 stig, 11 fráköst, 5 stoðsendingar og 5 stolna bolta, án efa maður leiksins.
Haukarnir byrjuðu betur í fyrsta leikhlutanum og voru komnar í 6-13 um miðjan leikhlutann, og var Rhoads með 11 stig af þeim 13 sem Haukar voru búnar að skora. Keflavík voru þó ekki á því að gefast upp og með góðri baráttu minnkuðu þær muninn í eitt stig, 15-16, með risa þrist frá Pálínu Gunnlaugsdóttur þegar mínúta var eftir af leikhlutanum. Leikhlutinn endaði síðan 17-18 og allt stefndi í svaka leik. Hjá Keflavík var Pálína komin með 5 stig og Jaleesa Butler með 4 stig. En hjá Haukum var Rhoads að spila svakalega og komin með 14 stig.
Þá var komið að öðrum leikhluta sem var gjörsamlega í eigu Hauka. Vörnin þeirra var frábær og átti Keflavík engin svör við henni. Hreint ótrúlegur kafli hjá Haukum. Þær komust í 0-16 run á fyrstu fimm mínútum leikhlutans og gjörsamlega yfirspiluðu Keflavík. Staðan var orðin 17-34 þegar Keflavík náði að skora sína fyrstu körfu í leikhlutanum. Haukarnir héldu áfram, skoruðu nánast í hverri sókn og héldu Keflavík aðeins í 6 stigum í leikhlutanum. En leikhluturinn endaði 6-27 og Haukar því komnar með góða forystu þegar flautað var til hálfleiks, 23-45. Hjá Haukum var Rhoads komin með 24 stig (einu meira heldur en allt Keflavíkurliðið) og Tierny Jenkins með 10 stig. En hjá Keflavík var Pálína með 5 stig og Butler, Helga Hallgrímsdóttir og Eboni Mangum með 4 stig.
Í upphafi þriðja leikhlutans var barátta Keflavíkur komin aftur og voru þær að pressa stíft allan völlinn. Fljótlega voru þær komnar á 6-0 run og ætluðu sér greinilega ekki í sumarfrí strax. Um miðjan hálfleikinn var staðan orðin 33-49 og Keflavík að saxa á forskot Haukanna. En þá kom góður kafli hjá Haukum og áður en hægt var að blikka augunum voru Haukar komnar á 0-6 run og staðan orðin 33-55. Haukarnir héldu áfram að keyra á Keflavík og á tíma virtist aðeins eitt lið vera á vellinum. Leikhluturinn endaði 35-61 og flestir komnir með hugmynd um hvernig leikurinn átti eftir að fara. Hjá Haukum var Rhoads með 26 stig og Jenkins og Gunnhildur Gunnarsdóttir með 12 stig. Birna Valgarðsdóttir var komin með 8 stig fyrir Keflavík og Butler og Mangum með 6 stig hvor.
Fjórði leikhlutinn byrjaði eins og sá þriðji hafði endað, Haukar með algjöra yfirburði. Þær náðu mest 34 stiga forskoti í leikhlutanum og voru hreint ótrúlegar. Sama hvað Keflavík reyndi þá hafði þær engin svör við hvorki vörn né sókn Hauka. En um miðjan leikhlutann þá létu báðir þjálfarar sínar ungu stelpur inn og sýndu þær oft mjög flotta takta. Leikurinn endaði síðan 52-75 eins og áður segir og Haukar komnar í úrslitin eftir að hafa slegið út Íslandsmeistarana 3-0. Það var alveg ótrúlegt að horfa upp á Keflavík spila í kvöld því að það var mikið andleysi í hópnum, eins og enginn gerði sér grein fyrir að þetta var „do or die“ leikur og barist eftir því. Haukar hins vegar spiluðu hreint ótrúlega í þessari seríu og það þarf mikið að gerast til að leggja þær af hólmi ef þær spila eins og þær gerðu í kvöld.
Hjá Keflavík var Pálína með 8 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar. Birna Valgarðs var einnig með 8 stig og skilaði síðan 4 fráköstum. Þá var Butler með 6 stig, 15 fráköst og 4 stoðsendingar.
Hjá Haukum var Rhoads að spila stórkostlega, hún endaði leikinn með 31 stig, 11 fráköst, 5 stoðsendingar og 5 stolna. Jenkins heldur áfram að skila sínum tvöföldu tvennum og skilaði 16 stigum og 15 fráköstum.
Heildarskor:
Keflavík: Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 8, Pálína Gunnlaugsdóttir 8/5 fráköst, Helga Hallgrímsdóttir 7/5 fráköst, Eboni Monique Mangum 6, Jaleesa Butler 6/15 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 4, Hrund Jóhannsdóttir 4, Sandra Lind Þrastardóttir 3/4 fráköst, Aníta Eva Viðarsdóttir 2, Telma Lind Ásgeirsdóttir 2, Soffía Rún Skúladóttir 2, Lovísa Falsdóttir 0.
Haukar: Jence Ann Rhoads 31/11 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Tierny Jenkins 16/15 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 12, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 9, María Lind Sigurðardóttir 4, Auður Íris Ólafsdóttir 2, Sara Pálmadóttir 1, Ína Salóme Sturludóttir 0, Sólrún Inga Gísladóttir 0, Inga Sif Sigfúsdóttir 0.
Mynd/ [email protected]
Umfjöllun/ [email protected]




