Haukar urðu á dögunum Íslandsmeistarar í ungmennaflokki karla eftir sigur á Selfossi í úrslitaeinvíginu, en titillinn var í höfn eftir sigur á Ásvöllum þar sem leiknum lauk 116-97 Haukum í vil eftir að liðið hafði einnig unnið fyrri leikinn í Vallaskóla.
Hér fyrir ofan má sjá mynd af sigurliðinu, sem er þjálfað af Þorkatli Jónssyni, en leikmaður liðsins, Kristófer Breki Björgvinsson, var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna með 31 stig, 13 fráköst og 8 stoðsendingar að meðaltali í leikjunum.
Við óskum Haukum innilega til hamingju með þennan flotta árangur.
Mynd / KKÍ




