HomeFréttirHaukar Íslandsmeistarar í minnibolta 11 ára stúlkna

Haukar Íslandsmeistarar í minnibolta 11 ára stúlkna

Lokaumferð Íslandsmóts minnibolta 11 ára stúlkna í körfubolta fór fram á Akureyri um síðustu helgi þar sem spilað var í átta riðlum. Í sterkasta riðlinum, A-riðli, öttu kappi lið Hauka, Aþenu, Stjörnunnar, Keflavíkur, Vals og Njarðvíkur. Haukar og Aþena voru jöfn að stigum eftir fyrri mót vetrarins og héldu þau uppteknum hætti fyrir norðan þar sem bæði lið unnu fyrstu fjóra leiki helgarinnar.

Vegna þessa var um hreinan úrslitaleik að ræða þegar liðin mættust loksins í síðasta leik mótsins. Leikurinn var í járnum og hart barist í fyrri hálfleik en í þeim síðari settu Haukastúlkur í lás í vörninni og náðu góðu forskoti með flottum sóknarleik. Svo fór að lokatölur urðu 25–12 og fagnaði Haukaliðið því Íslandsmeistaratitlinum annað árið í röð.

Hér fyrir ofan má sjá mynd af nýkrýndum Íslandsmeisturunum.

Fréttir
- Auglýsing -