Tveir leikir fóru fram í Dominos deild karla í kvöld. Í þeim fyrri unnu Haukar lið Þórs frá Akureyri í DB Schenker höllinni í Hafnarfirði. Seinni leikur kvöldsins var viðureign Þórs og KR í Þorlákshöfn, en í honum fóru gestirnir úr Reykjavík með sigur af hólmi.
Í fyrstu deild karla fóru einnig fram tveir leikir. Í þeim fyrri fór Fjölnir nokkuð létt með Vestra á Ísafirði. Í seinni leiknum sigraði Breiðablik lið Ármanns í Kennaraháskólanum.
Úrslit kvöldsins
Dominos deild karla




