Haukar féllu úr úrvalsdeild karla á síðustu leiktíð með miklum naumindum eftir að hafa veitt mörgu stórliðinu skráveifu. Pétur Rúðrik Guðmundsson verður áfram við stjórnartaumana í Schenkerhöllinni og telur Hauka eiga góða möguleika á því að komast aftur upp í úrvalsdeild.
Hvaða breytingar hafa orðið á hópnum?
Hann Örn ákvað að breyta aðeins til og fara til Hamars í vetur. Þar er góður drengur á ferð og með mikla hæfileika. Það er sárt að missa hann en ég vona auðvitað að hann komi aftur heim og leyfi okkur að njóta krafta sinna seinna.
Við höfum fengið til liðs við okkur Þorstein Finnbogason úr Gríndavík og Elvar Þór Sigurjónsson úr Skallagrím. Þetta eru báðir góðir leikmenn sem styrkja liðið. Einnig hafa verið að mæta á æfingar í sumar hjá okkur leikmenn sem voru í yngri flokkunum hjá Haukum en hafa vegna meiðsla, vinnu eða skóla ekki getað lagt þann metnað í körfuboltann sem þarf. Það er alltaf gott fyrir lið að hafa góðan kjarna af leikmönnum og því fögnum við þessu. Við höfum verið ca. 15-20 á æfingum í allt sumar og það er ekki hægt að kvarta yfir því. Þessir strákar eru gríðalega metnaðarfullir og ég trúi því að þú uppskerir það sem þú sáir.
Hvernig leggst 1. deildin í þig undir 4-1 reglunni?
Mér líst mjög vel á þetta, hefði viljað sjá þetta í úrvalsdeildinni einnig en kannski verður þetta orðið breytt þegar við komum upp aftur.
Við hverju býst þú á næstu leiktíð, hverjir finnst þér líklegir í toppbaráttuna?
Ég held að það sé ómögulegt að segja til um hverjir verði í toppbaráttunni. Í fyrra voru liðin með 2-3 útlendinga sem skekkir alla mynd á því hvernig liðin eru raunverulega. Þannig að ég held að ekki sé hægt að sjá fyrir hverjir verði í toppbaráttunni. Ég veit að við stefnum þangað en treysti mér ekki til að dæma um styrkleika annarra liða.
Hvernig metur þú möguleika þíns liðs?
Ég tel okkur eiga góða möguleika á að komast upp í úrvalsdeild og við stefnum á það. Við höldum nánast öllum okkar mannskap og höfum æft vel í sumar til að gera okkur klára í þennan slag og er ég því bjartsýnn fyrir komandi tímabil. Ég er reyndar alltaf bjartsýnn að eðlisfari en tel mig alveg eiga inneign fyrir því núna.
Haukar hefja leik á útivelli í 1. deild þann 12. október þegar þeir heimsækja FSu í Iðu á Selfossi.
Mynd/ [email protected]





