HomeFréttirHaukar bitu frá sér og knúðu fram oddaleik

Haukar bitu frá sér og knúðu fram oddaleik

Haukar er klárlega ekki tilbúnir til þess að fara í sumarfrí frá Iceland Express deildinni en frábær leikur þeirra í kvöld verður þess valdandi að spilaður verður oddaleikur í Stykkishólmi á miðvikudaginn. Jafnræði var með liðunum alveg fram í þriðja leikhluta en Haukum tókst þá að auka muninn upp yfir 10 stigin og stóðust öll áhlaup Snæfellinga.
Haukar byrjuðu leikinn með látum og komust í 8-0. Vörn þeirra var þétt fyrir og áttu leikmenn Snæfells erfitt með að finna leiðina að körfu heimamanna. Nonni Mæju skoraði fyrstu stig Snæfellinga af vítalínunni og minnkaði muninn í 8-2. Haukar komust í 12-5 og svo kom flott áhlaup frá Snæfellingum sem breyttu stöðunni í 12-13 með þriggja stiga körfu frá Pálma Sigurgeirssyni. Haukar náðu að komast aftur yfir og Snæfellingar jöfnuðu 14-14. Eftir það var jafnt á öllum tölum og liðin skiptust á að skora. Snæfell leiddu með tveimur stigum eftir fyrsta leikhluta með tveimur stigum, 19-21, en Bojovic náði að skora fyrir gestina á lokaflautinu.
 
Haukar skoruðu fyrstu sex stig annars leikhluta og náðu forystunni á ný. Haukar náðu sex stiga forystu þegar fjórar og hálf mínúta voru til leikhlés 32-26. Snæfellingar voru komnir í bónus á þessum tímapunkti og Sean Burton minnkaði muninn fyrir Snæfellinga í tvö stig og jafnaði svo leikinn í næstu sókn þegar að hann keyrði að körfunni og fiskaði villu á Semaj Inge. Lítið gekk upp hjá Haukum á þessum kafla og Pétur Ingvarsson, þjálfari Hauka, tók leikhlé til að skerpa á leik sinna manna.
Atli Hreinsson kom Snæfelli yfir 32-34 en Semaj Inge jafnaði leikinn á vítalínunni eftir að dæmd hafði verið óíþróttamannsleg villa á Egil Egilsson. Sveinn Ómar Sveinsson kom Haukum aftur yfir 36-34 og Haukar leiddu svo með einu stigi í hálfleik 38-37.
 
Haukar byrjuðu seinni hálfleik með miklum látum og var barátta þeirra gífurleg. Snæfellingar gerðu sig seka um helling af mistökum og voru skot þeirra ekki að rata rétta leið. Haukar komust 11 stigum yfir um miðjan leikhlutann með skot frá Erni Sigurðarsyni og Pálmi Freyr Sigurgeirsson minnkaði muninn á línunni með tveimur vítaskotum. Snæfellingar rönkuðu aðeins við sér og minnkuðu muninn í sjö stig en Haukar svöruðu fljótt og juku muninn aftur upp í 11. Snæfellingar komu með annað áhlaup og skoruðu sex stig í röð og munurinn því fimm stig þegar að loka leikhlutinn hófst, 58-53.
 
Það fór um stuðningsmenn Hauka þegar að Snæfellingar opnuðu loka leikhlutann með þriggja stiga körfu og minnkuðu muninn í tvö stig. Haukar hertu þá vörnina hjá sér og stóðust áhlaup gestanna og juku muninn upp í 12 stig. Snæfellingar gerðu það sem þeir gátu til að minnka muninn og náðu honum aftur niður í sex stig en nær komust þeir ekki og Haukar unnu mikilvægan 10 stiga sigur 77-67.
 
Gerald Robinson var stigahæstur Hauka með 27 stig og 13 fráköst og þeir Semaj Inge og Haukur Óskarsson voru með 16 stig hvor.
 
Hjá gestunum var Jón „Nonni Mæju“ Ólafsson með 14 stig og 5 fráköst og þeir Ryan Amaroso og Sean Burton voru með 13 stig hvor. Amaroso var einnig með 15 frákös og Burton með 8.
 
Það sýndi sig bersýnilega að Snæfellingum vantaði að hafa Burton í fullu fjöri en hann hefur oft sýnt betri leik og greinilegt að meiðslin sem hann varð fyrir í fyrsta leik liðanna að hrjá hann. Að sama skapi sást greinilega hvað Haukum hefur vantað undanfarið í sinn leik en Sævar Ingi Haraldsson stjórnaði leik Hauka eins og herforingi.
 
Liðin mætast í odda leik í Stykkishólmi á miðvikudaginn og skerst þá úr um hvort liðið heldur áfram í 4 liða úrslit.
 
Mynd: Gerald Robinson var drjúgur fyrir Hauka í kvöldÞorsteinn Eyþórsson

[email protected]

 
Fréttir
- Auglýsing -