Stjórn körfuknattleiksdeildar Hauka hefur tekið þá ákvörðun að styrkja liðið fyrir komandi átök í Iceland Express deildinni og segja að helsta ástæðan sé sú að árangur liðsins það sem af er móti sé undir væntingum.
Þetta kemur fram á heimasíðu Hauka.
Leikmaðurinn sem um ræðir heitir Lauren Thomas-Johnson og kemur frá Bretlandi. Lauren spilaði með Kirkwood CC háskólanum og spilar stöðu bakvarðar.
Sjá frétt um á haukar.is




