Hún var vel spikuð merin sem KR-ingar riðu á inn í Hafnarfjörð á í kvöld þegar þeir öttu kappi við heimamenn í Haukum. Haukum tókst engan veginn að stöðva sigurgöngu Vesturbæjarstráka sem telur nú átta leiki og ljóst að það verður erfitt að stöðva þá á þessu flugi.
Haukar byrjuðu með miklum látum og skoruðu fyrstu 5 stig leiksins. Ljóst var að þeir ætluðu ekki að láta gestina hirða stigin tvö auðveldlega með sér en annað átti eftir að koma í ljós. Marcus Walker var drjúgur fyrir KR í upphafi og skoraði fyrstu 12 af 14 stigum KR –inga og endaði leikinn með 35 stig.
Fljótlega voru gestirnir búnir að ná yfirhöndinni í leiknum og á meðan ekkert gekk upp hjá Haukum náði KR þægilegu 10 stiga forskoti. Haukar bitu aðeins frá sér og minnkuðu muninn í þrjú stig og þannig var munurinn á liðunum eftir leikhlutann.
KR tók gjörsamlega öll völd á vellinum í öðrum leikhluta og var nánast eitt lið á vellinum. Til að gera langa sögu stutta skoruðu leikmenn KR 37 stig gegn átta Hauka og leiddu með 32 stigum í hálfleik, 27-59. Fyrsta stig Hauka kom eftir þriggja mínútna leik og tvær mínútur liðu í næstu tvö. Ekkert gekk upp hjá þeim og verður seint sagt að leikgleði hafi skinið af andlitum heimamanna.
Eftir leikur KR var í raun auðveldur. Haukar bitu aðeins frá sér í upphafi seinni hálfleiks og minnkuðu muninn í 24 stig en nær KR liðinu komust þeir ekki sama hvað þeir reyndu. Hittni heimamann var alls ekki góð og var vörn þeirra eins og gatasigti á löngum köflum. Áður en þriðji leikhluti kláraðist höfðu KR-ingar keyrt muninn aftur upp í 33 stig og biðu þeir bara eftir að leikurinn myndi klárast.
Minni spámenn fengu að spreyta sig í loka leikhlutanum og leikurinn endaði að lokum með 32 stiga sigri KR 74-106.
Marcus Walker var stigahæstur KR með 35 stig og Pavel Ermolinskji var honum næstur með 12 stig 8 fráköst og 8 stoðsendingar.
Hjá Haukum var Semaj Inge með 22 stig og 5 fráköst og Örn Sigurðarson var honum næstur með 13 stig og 5 fráköst.
Mynd: Pavel daðraði við þrennuna frægu í kvöld gegn Haukum – [email protected]




