spot_img
HomeFréttirHáskólaboltinn: Flottur sigur hjá Söru og Margréti

Háskólaboltinn: Flottur sigur hjá Söru og Margréti

Sara Hinriksdóttir og Margrét Rósa Hálfdánardóttir fögnuðu sigri með liði sínu Camisius College gegn liði Saint Francis (Pa.)  77:52 varð lokastaða leiksins og okkar stúlkur að standa sig með prýði. Sara lék 10 mínútur og skoraði á þeim 6 stig. Margrét skellti svo í 19 stig á þeim 27 mínútum sem hún spilaði og fékk mikið lof fyrir leik sinn. 

 

Kristinn Pálsson og félagar í Marist gekk ekki svo vel í Ohio fylki þegar þeir mættu liði Kent State skólanum.  Marist urðu að játa sig sigraða með 7 stigum, 79:72.  Kristinn oft spilað betur en hann setti niður 2 stig og hirti 5 fráköst í leiknum. 

 

 

Furman háskólinn tapaði svo gegn stórliði UConn með 58 stigum gegn 83 þar sem að okkar maður Kristófer Acox tók 10 fráköst og skoraði þrjú stig eftir að hafa byrjað inná hjá Furman. 

 

Tölfræði Canisius leiksins

 

Tölfræði Marist leiksins

 

Tölfræði Furman leiksins

Fréttir
- Auglýsing -