Ígær kvöld komu Njarðvíkurstúlkur í Grafarvoginn og búist var við jöfnum og spennandi leik enda mikil barátta um stigin tvö. Heimastúlkur byrjuðu leikinn af krafti og var það varnarleikur þeirra sem gaf þeim góða forystu eftir fyrsta leikhluta og staðan eftir hann var 24-17 fyrir Fjölni.
Fjölnir hélt áfram mikilli baráttu og náðu að halda sama tempói í leiknum en Sverrir þjálfari Njarðvíkur var að spara Ditu aðeins sem er að kljást við meiðsli á ökkla og sá hann lítið annað í stöðunni en að setja hana inn á eftir hálfan annan leikhluta og kom þá meira sjálfstraust í Njarðvíkurliðið og unnu þær aðeins á Fjölnisstúlkur fyrir hálfleik.
Inga Buzoka fór hamförum í vörn og sókn, hún var óstöðvandi inn í teignum og hafði mikið að segja með stigafjölda í byrjun leiksins, hún skoraði 27 stig og tók 16 fráköst og var þetta hennar besti leikur hingað til, Tasha Harris átti einnig rosalega góðan leik og var hún lang atkvæðamest í liði Fjölnis með 34 stig, 13fráköst, 9 stolna bolta og 9 stoðsendingar. Rétt eftir hálfleik gerist það að Tasha lendir illa eftir að hafa hoppað í frákast og fær leikmann úr Njarðvík ofaná höndina sína sem varð til þess að hún slasaðist illa á þumalputta á skothendi sinni og virðist sem hann hafi brotnað við átökin, en hún var ekki hætt þá og lét sjúkraþjálfara teipa hann fastan og skipti um skothönd og kláraði leikinn með stæl. Hún fór í myndatöku eftir leik og mun koma síðar í ljós hvernig fer með meiðslin.
Í liði Njarðvíkur var Shayla Fields allt í öllu og átti stórleik, 32stig , 14 frák og 5 stoðsendingar en rest af stigaskori dreifðist jafnt og vel milli leikmanna Njarðvíkur.
Seinni hálfleik skoruðu liðin nákvæmlega jafn mörg stig 13-13 í þriðja leikhluta og 24-24 í þeim fjórða, og þar með hélt Fjölnir yfirhöndinni í leiknum allan tíman og uppskar sigur 85-77. Fjölnir sleit sig frá botnsætinu og skildi Grindavík eftir neðst niðri með sigrinum í gær.
,,Það er alltaf gaman að vinna leiki, það sem við hefðum átt að passa betur voru nokkrar kærulausar sendingar og svo vorum með nokkra tapaða bolta sem hleypti þeim svoldið inn í leikinn og komust þær nálægt okkur en við héldum baráttu áfram út allan leikinn, mjög ánægður með það að klára þetta svona,” sagði Bragi Magnússon sem nýverið tók við Fjölni af Eggerti Maríusyni.
Umfjöllun og myndir: Karl West Karlasson




