spot_img
HomeFréttirHarden hafði betur í orrustunni við Westbrook

Harden hafði betur í orrustunni við Westbrook

 

Tíu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Úrslitin að mestu eftir bókinni þar sem að topplið deildanna unnu sína leiki. Golden State Warriors sigruðu Memphis Grizzlies eftir frábæran fjórða leikhluta, en hann vann liðið með 10 stigum. Bostoc Celtics sigraði Miami Heat með 4 stigum, 112-108 og eru nú búnir að jafna Cleveland Cavaliers að sigrum í toppsæti austurstrandarinnar.

 

Barátta þeirra tveggja leikmanna sem berjast um það að verða valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar, James Harden og Russell Westbrook, endaði með sigri Harden. Sigraði lið hans Houston Rockets lið Oklahoma City Thunder með 137 stigum gegn 125. Westbrook þó með mun betri tölur í þeim leik, 39 stig, 11 fráköst og 14 stoðsendingar, þó tölu Harden hafi ekki verið neitt svo slæmar, 22 stig, 5 fráköst og 12 stoðsendingar.

 

Þá sigraði Portland Trail Blazers skriðdrekaliðana í Los Angeles Lakers, 97-81 og kom sér með því um sinn í áttunda og síðasta úrslitakeppnissæti vesturstrandarinnar.

 

Hér má sjá það helsta úr einvígi Harden og Wetbrook:

 

Staðan í deildinni

 

Úrslit næturinnar:

Phoenix Suns 106 – 120 Charlotte Hornets

Brooklyn Nets 107 – 92 Atlanta Hawks

Sacramento Kings 98 – 97 Los Angeles Clippers

Chicago Bulls 109 – 94 Milwaukee Bucks

Oklahoma City Thunder 125 – 137 Houston Rockets

Philadelphia 76ers 94 -107 Indiana Pacers

Miami Heat 108 – 112 Boston Celtics

Memphis Grizzlies 94 -106 Golden State Warriors

New Orleans Pelicans 115 – 90 Denver Nuggets

Portland Trail Blazers 97 – 81 Los Angeles Lakers

Fréttir
- Auglýsing -