Hannes S. Jónsson formaður KKÍ var ánægður með gærkvöldið þegar Ísland tók á móti Serbíu í Laugardalshöll. Vel var mætt á völlinn og íslenska liðið fékk dyggilegan stuðning en tap máttum við sætta okkur við engu að síður en þegar lokaflautið gall hafði íslenska liðið heldur betur látið gesti sína finna til tevatnsins. Hannes sagði álagið mikið en sjálfboðaliðar og aðrir hefðu staðið sig með miklum sóma og þrátt fyrir álagið væri mjög gaman.




