,,Ég er ansi stoltur af strákunum og þjálfararteyminu og þrátt fyrir að sigurinn hafi verið öruggur þá var ég ansi spenntur þar til leiknum lauk. Það er frábært að geta fylgst beint með strákunum í gegnum tölfærðivef FIBA Euroe og var ánægjulegt að sjá til dæmis á facebook hversu margir voru að fylgjast með leiknum hjá strákunum og „hvetja“ þá áfram þar," sagði Hannes S. Jónsson formaður KKÍ í samtali við Karfan.is í kvöld eftir að U18 ára landslið Íslands landaði fræknum sigri gegn sterku liði Svartfjallalands á EM sem fram fer í Bosníu.
,,Þessir sigur strákana í kvöld er ansi magnaður og sætur, það sem gerir þennan sigur enn betri er að okkar drengir voru með forystuna stærstan hlutann af leiknum og Svartfellingar áttu í raun aldrei möguleika á sigri. Þessi sigur er er klárlega með flottari sigrum landsliðanna okkar á síðustu árum og verður skráður í sögubókina góðu. Svartfjallaland vann til dæmis Finna í gær en Finnar unnu okkar drengi í úrslitaleiknum á NM í vor, við reyndar unnum Finna fyrr á NM þegar liðin mættust áður en spilað var til úrslita. Núna hafa strákarnir spilað tvo leiki í sínum riðli og eiga eftir að spila þrjá leiki sem eru allir við frændþjóðir okkar Norðmenn, Finna og Svía. Við skulum taka einn leik í einu og ekki fara að setja væntingastuðulinn of langt upp að þessu sinni," sagði Hannes og mærði aðildarfélög KKÍ fyrir gott yngriflokkastarf.
,,Þessi sigur í dag og í gær á móti Sviss, frábær árangur U16 stelpnanna okkar á Gíbraltar nú í júlí ásamt árangri okkar á NM í vor sýnir það vel hversu gott starf er unnið í yngri flokkum félaganna okkar og að körfuboltinn á Íslandi er í góðri sókn. Það er því ansi mikilvægt fyrir hreyfinguna að haldið sé úti öflugu afreksstarfi landsliðanna okkar og að okkar efnilegustu og bestu leikmenn fá tækifæri á að spila á mótum eins NM og EM," sagði Hannes og hvatti fólk til að senda liðinu kveðjur út til Bosníu.
,,Ég hvet alla körfubolta-og íþróttaáhugamenn að fylgjast með strákunum í Bosníu á næstu dögum og senda þeim hlýja strauma í komandi leikjum , alveg eins og öflugir áhorfendur geta skipt máli í stúkunni góðu þá mun stuðningur og kveðjur hér að heiman vera góður fyrir allt teymið í Bosníu."






