spot_img
HomeFréttirHannes: Breytingar í vændum á næsta ári

Hannes: Breytingar í vændum á næsta ári

Karfan settist niður með formanni KKÍ, Hannesi S. Jónssyni, til að ræða ársþingið sem er nýafstaðið og áherslurnar sem félögin lögðu fyrir stjórn KKÍ til framkvæmdar á næsta ári. Við ræðum skuldir félaga og hvaða merkingu slíkt hefur fyrir sambandið í heild ef of mörg félög standa ekki í skilum.

KKÍ hefur tekið að sér að greiða dómaragjöld á næsta tímabili fyrir félögin og rukka þú síðan og sömuleiðis verða breytingar gerðar á þjálfaramálum, en þjálfarar yngri flokka þurfa að vera menntaðir ellegar hækka mótsgjöld félaga.

Það eru laus störf í boði á skrifstofu KKÍ og hægt er að senda ferilskrár og kynningarbréf á [email protected] fyrir 8. apríl næstkomandi. Undir lokin ræðum við um hvernig breytta reglan um erlenda leikmenn hefur gengið og hvernig hægt sé að fjölga fólki í innra starfi félaga (stjórnir, sjálfboðaliðar, o.s.frv.).

Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson

00:00:15 – Stór félög fjarverandi á ársþingi KKÍ
00:03:00 – Ársþingið setur strangari reglur við skuldum félaga
00:06:30 – Hvað gerist ef að félög standa ekki í skilum á næsta ári?
00:09:25 – KKÍ tekur að sér að borga dómaragjöld og rukkar síðan félögin
00:11:25 – KKÍ leitar nýrra liðsmanna; auglýsa opin störf á skrifstofunni
00:14:15 – Fyrirhugaðar breytingar í þjálfaramálum á næsta tímabili
00:18:00 – Vantaði einhverjar lagabreytingar eða umræðu á þinginu?
00:20:00 – Hvernig hefur breytt regla um erlenda leikmenn gengið?
00:27:00 – Mikilvægi nýliðunar í innra starfi körfuboltans.

Mynd: KKÍ

Fréttir
- Auglýsing -