Stúlkurnar úr Blómabænum sýndu það enn og aftur að það er ekki að ástæðulausu að þær eru efstar í Iceland Express deildinni. Með Kristrúnu og Slavicu fremstar í flokki áttu þær ekki í erfiðleikum með lið Njarðvíkur í kvöld, þrátt fyrir góða spretti hjá heimastúlkum og leynivopn Sverris, spúsu sína hana Auði sem að hefur dustað rykið af skónum og sýndi að hún hefur litlu gleymt.
Hjá Njarðvík voru Shayla með 26 stig, 9 fráköst, Díta með 17 stig, 9 fráköst og virðist vera að jafna sig af meiðslum sem hún hlaut í fyrri leik liðanna í Hveragerði og Árnína Lena með 11 stig, 7 fráköst og 4 stolna bolta bestar, Erna og Emelía áttu fína innkomu.
Eins og fyrr sagði voru Slavica, hreint ótrúlegur leikmaður sem að þarf lítið meira en að hugsa um körfuna en þá er hún búin að skora, með 30 stig, þar af 6 þriggja stiga og 7 stolna bolta, Kristrún 25 stig yfirburðamanneskjur, ásamt Jaleeshu sem að tók 16 fráköst og var með 19 stig.
Heildarskor:
Njarðvík : Shayla Fields 26/9 fráköst, Dita Liepkalne 17/9 fráköst, Árnína Lena Rúnarsdóttir 11/7 fráköst, Ólöf Helga Pálsdóttir 7/5 fráköst, Anna María Ævarsdóttir 2, Emelía Ósk Grétarsdóttir 2, Erna Hákonardóttir 2, Jóna Guðleif Ragnarsdóttir 0, Ína María Einarsdóttir 0, Eyrún Líf Sigurðardóttir 0, Ásdís Vala Freysdóttir 0, Auður R. Jónsdóttir 0.
Hamar: Slavica Dimovska 30/7 stoðsendingar, Kristrún Sigurjónsdóttir 25, Jaleesa Butler 19/16 fráköst/3 varin skot, Íris Ásgeirsdóttir 7, Guðbjörg Sverrisdóttir 6/5 fráköst, Fanney Lind Guðmundsdóttir 4, Regína Ösp Guðmundsdóttir 2/6 fráköst, Adda María Óttarsdóttir 0, Jenný Harðardóttir 0/4 fráköst, Kristrún Rut Antonsdóttir 0, Rannveig Reynisdóttir 0.
Dómarar: Eggert Þór Aðalsteinsson, Jón Guðmundsson
Texti: GÓS




