HomeFréttirHamarssigur í Hveragerði

Hamarssigur í Hveragerði

 
Njarðvíkurstúlkur byrjuðu betur er þær heimsóttu stöllur sínar í Hveragerði fyrr í dag í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna. Dita Liepkalne átti fyrstu stig gestanna er hún setti niður þriggja stiga körfu í fyrstu sókn Njarðvíkurkenna. Eitthvað virtust heimastúlkur seinar í gang og komust þær grænklæddu í 5-11 en þá rönkuðu Hamarsstúlkur við sér og var staðan eftir fyrsta leikhluta 24-27 gestunum í vil. Eins og sjá má á tölunum var ekki mikið um góðan varnarleik hjá liðinum framan af.
Í byrjun annars leikhluta fékk Fanney Lind hjá Hamri sína fjórðu villu og tók Ágúst hana fljótlega af velli eftir það og setti Jenný inn sem kom með mikilvægan þrist strax í upphafi. Hamarsstúlkur spiluðu mjög vel og að sama skapi virtist lítið ganga upp hjá gestunum og var staðan 45-40 í hálfleik.
 
Gestirnir komu mun sprækari til leiks í síðari hálfleik þar sem að Julia háði harða baráttu inni teig hjá Hamarsstúlkum og Jalessa átti að sama skapi stórleik, þó svo að aðeins 12 skot hafi farið ofan í hjá henni af 25 tilraunum.
 
Í fjórða leikhluta komust heimastúlkur í 77-66 með nokkrum þristum frá Slavicu, en þá tók Sverrir þjálfari Njarðvíkinga leikhlé og hefur sagt nokkur vel valin orð við sínar stelpur því að þær sýndu klærnar þar á eftir og náðu að minnka muninn í 4 stig. En það dugði ekki til. Heimastúlkur voru mun betri síðustu mínúturnar þar sem að allt gekk upp og eins og áður sagði átti Jaleesa stórleik, ásamt Kristrúnu sem að átti frábæran leik. Lokaniðurstaða 85-77 og Hamarsstúlkur leiða því einvígið 1-0
 
Þegar á heildina er litið áttu allar Hamarsstúlkur góðan leik þó svo að Jaleesa og Kristrún hafi verið yfirburðarmanneskjur, Slavica skilaði sínu hlutverki mjög vel, ásamt Guðbjörgu sem að gerði 12 stig og Jenný sem gerði 8 mikilvæg stig fyrir Hamar.
 
Hjá gestunum átti enginn yfirburðarleik, en Shayla var stigahæst eins og oft áður, Julia barðist vel inní teig. Ína María og Árnína Lena spiluðu góða vörn á Hamarsstúlkur og Eyrún Líf átti góða innkomu.
 
Stigaskor Hamar;
Jaleesa Butler 24/13 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 16, Slavica Dimovska 15/5 stoðsendingar, Guðbjörg Sverrisdóttir 12/6 fráköst, Jenný Harðardóttir 8, Fanney Lind Guðmundsdóttir 5, Íris Ásgeirsdóttir 3, Þórunn Bjarnadóttir 2, Regína Ösp Guðmundsdóttir 0, Rannveig Reynisdóttir 0, Kristrún Rut Antonsdóttir 0, Adda María Óttarsdóttir 0.
 
Stigaskor Njarðvík;
Shayla Fields 26/13 fráköst, Dita Liepkalne 23/6 fráköst, Julia Demirer 18/19 fráköst, Ína María Einarsdóttir 7, Ólöf Helga Pálsdóttir 3/5 fráköst/5 stoðsendingar, Árnína Lena Rúnarsdóttir 0/4 stoðsendingar Auður R. Jónsdóttir 0, Eyrún Líf Sigurðardóttir 0, Erna Hákonardóttir 0, Emelía Ósk Grétarsdóttir 0, Ásdís Vala Freysdóttir 0, Anna María Ævarsdóttir 0.
 
 
Umfjöllun: GÓS
Fréttir
- Auglýsing -