Hamar sigraði Fjölnir með 101 stigi gegn 91 í 5. leik undanúrslita úrslitakeppni 1. deildar karla fyrr í kvöld. Leikurinn oddaleikur um hvort liðið kæmist í úrslitaeinvígið um seinna sætið í Dominos deildinni á komandi tímabili. Annar oddaleikur fer fram í hinu undanúrslitaeinvíginu á milli Breiðabliks og Vals á morgun og þurfa Hamarsmenn því að bíða úrslita þess leiks til þess að fá að vita hvort liðið þeir þurfi að keppast við um sætið.
Fyrir leik
Oddaleikur og allt undir. Pressan var kannski meiri á Fjölni, þar sem flestir höfðu spáð þeim áfram, á meðan Hamarsmenn gátu komið og notið augnabliksins meira.
Hvar vannst leikurinn
Sterk byrjun Hamarsmanna í fjórða leikhluta skóp sigurinn, Hamarsmenn voru allann tímann með meiri vilja, og baráttann var þeirra megin. Mest leiddu gestirnir með 14 stigum 90-76. Fjölnismenn vitust stressaðir og skot þeirra rötuðu ekki rétta leið.
Maður leiksins
Oddur Ólafsson. Eflaust margir sem reka upp stór augu við þessa útnefningu, enda ekki með hæðstu tölurnar, en Oddur var bílstjórinn í Hamarsrútunni. Oddur sér ekki bara um að drífa sitt lið áfram heldur einnig var hann mest allan leikinn settur til höfuðs Róberti hjá Fjölni sem endar með 14 stig, en hann hafði verið með að meðaltali rúm 20 stig. Svo má ekki gleyma að minnast á stemmninguna sem fylgir honum.
Vel gert Hvergerðingar_x1f4aa__x1f44c_!#Boom
— Marvin Vald (@MarvinVald) March 25, 2017
Stiklað á stóru
Hamarmenn mættu pressulausir inní oddaleikinn á meðan Fjölnismenn voru með bakið upp við vegg. Liðið í öðru sæti gegn fimmta sætinu og fæstir sem höfðuð trú á Oddaleiknum. Fjölnismenn byrjuðu leikinn betur og unnu flest alla lausu boltanna, forskotið 17-9 eftir um 7 mínútur. Hamarsliðið endaði leikhlutann hins vegar á að stela boltanum og setja niður flautukörfu, 23-21. Annar leikhlutinn var í járnum mest allan tímann, en Fjölnisbekkurinn fékk dæmda á sig tæknivillu á sama tíma og Rúnar var á leið á línuna. Hamarsmenn leiddu 39-46. Aftur komu Fjölnismenn dýrvitlausir til leiks og náðu strax að vinna upp forskot gestanna 48-48, Hamarsmenn bitu hins vegar aftur frá sér og fóru með sama mun inní loka fjórðunginn 65-72. Fyrstu fimm mínútur fjórða leikhlutans voru Hamarsmanna. Þeir náðu 14 stiga forskoti 76-90 og leikurinn að fjara út fyrir heimamenn. Svo fór að Hamarsmenn náðu að klára leikinn 91-101 og þar með einvígið 3-2 og munum þeir leika til úrslita gegn Val eða Breiðablik. Fjölnismenn þurfa hins vegar að bíta í það súra epli að sitja eftir í fyrstu deild að minnsta kosti eitt tímabil enn.
Umfjöllun, viðtöl / Ívar Örn Guðjónsson
Myndir / Bára Dröfn
Viðtöl:




