HomeFréttirHamar: Haukar er liðið sem þarf að vinna í 1. deildinni

Hamar: Haukar er liðið sem þarf að vinna í 1. deildinni

Lárus Jónsson fór með Hamar í úrslitakeppni 1. deildar á síðustu leiktíð þar sem liðið var sent í sumarfrí af nýliðum ÍA. Nú hafa Hvergerðingar séð á eftir tveimur reynsluboltum en bætt við sig sterkum manni í Erni Sigurðarsyni.
Hvernig hefur sumarið gengið?
Liðið kemur ágætlega undan sumri þar sem flestir leikmenn hafa verið duglegir í lyftingasalnum. 
 
Hvaða breytingar hafa orðið á hópnum?
Stærsta breytingin á hópnum er sú að Svavar Páll hefur lagt skóna á hilluna. Auk þess hefur Björgvin ,,gamla brýnið" Jóhannesson ákveðið að snúa sér að hótelrekstri. Annars er hópurinn sá sami nema Örn Sigurðarson kom til okkar frá Haukum.
 
Hvernig leggst 1. deildin í þig undir 4-1 reglunni?
Vonandi verður reglan til þess að erlendir leikmenn liðanna núlli hvorn annan út og íslenskir leikmenn taki frekari ábyrgð.
 
Við hverju býst þú á næstu leiktíð, hverjir finnst þér líklegir í toppbaráttuna?
Ég tel líklegt að Haukar, Hamar og Valur verði í toppbaráttunni og svo á örugglega eitthvað lið eftir að koma á óvart eins og ÍA gerði í fyrra. Höttur og Breiðablik eru líka með góðan hóp og eiga án efa eftir að vera erfið við að glíma í vetur.
 
Hvernig metur þú möguleika þíns liðs?
Við ætlum að byggja á síðasta ári og vonandi eru ungu strákarnir í liðinu tilbúnir til að taka þá ábyrgð á úrslitum sem þarf til að ná árangri. Ef þeir eru tilbúnir að axla ábyrgð þá eru okkur allir vegir færir en eins og staðan er í dag þá eru Haukar liðið sem þarf að vinna í 1. deildinni.
 
Hamar hefur leik í 1. deild þann 12. október gegn nýliðum Augnabliks á útivelli.
 
Mynd/ [email protected] – Lárus Jónsson þjálfari Hamarsmanna fékk góða sendingu úr Hafnarfirði fyrir tímabilið þegar Örn Sigurðarson ákvað að ganga í raðir Hvergerðinga.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -