Hamarskonur léku einn sinn besta leik í sögu liðsins þegar þær völtuðu yfir Keflavík á heimavelli í gær. Ekki var að sjá að þarna mættust liðin í 1. og 2. sæti Iceland Express-deildarinnar því Hamar lét Keflavík líta virkilega illa út og munurinn á liðunum var 32 stig í lokin, 95-63.
Keflvíkingar byrjuðu betur og skoruðu fyrstu sjö stigin í leiknum. Eftir að Hamarsliðið náði að sníða vankantana af varnarleiknum var ekki að sökum að spyrja. Hamar kom til baka með 14-3 leikkafla og náði forystunni í leiknum, 16-14.
Eftir það litu Hvergerðingar aldrei til baka og munurinn jókst stöðugt út leiktímann. Staðan í hálfleik var 40-27 og í 3. leikhluta náði Hamar fljótlega 20 stiga forskoti. Slavica Dimovska og Jaleesa Butler hafa haldið uppi sóknarleik liðsins í vetur en nú komu stig úr öllum áttum.
Hamarskonur börðust af krafti allt til leiksloka á meðan Keflvíkingar voru alls ekki í sama takti og gekk ekkert að stöðva Hamar.
Dimovska skoraði 22 stig fyrir Hamar og Butler 21 auk þess að taka 18 fráköst og verja 5 skot. Kristrún skoraði 17 stig og Íris Ásgeirsdóttir 12. Guðbjörg Sverrisdóttir skoraði 10 stig og tók 10 fráköst og Fanney Guðmundsdóttir skoraði 8 stig og tók 8 fráköst.
Hjá Keflavík var Jacquline Adamshick atkvæðamest með 23 stig og tók 13 fráköst. Birna Valgarðsdóttir skoraði 10 stig og tók 9 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði 9 stig og Bryndís Guðmundsdóttir var með 7 stig og 10 fráköst.
Eftir leikinn eru Hamarskonur áfram ósigraðar í efsta sæti deildarinnar en Keflavík er nú 6 stigum á eftir þeim í 2. sæti.
Mynd/Sævar Logi Ólafsson: Jaleesa Butler sækir að Keflvíkingum í gær.
Umfjöllun: Jakob Hansen




