spot_img
HomeFréttirHálfleikur: Njarðvík 45-33 Stjarnan

Hálfleikur: Njarðvík 45-33 Stjarnan

Þá er kominn hálfleikur í oddaviðureign Njarðvíkur og Stjörnunnar í 8-liða úrslitum Domino´s-deildar karla en Njarðvíkingar leiða 45-33 í hálfleik.

Stefan Bonneau er með 18 stig og 7 fráköst í liði Njarðvíkinga en Jeremy Atkinson er með 15 stig og 11 fráköst í liði Stjörnunnar. Öflugur varnarleikur heimamanna í öðrum leikhluta er að skapa þetta 12 stiga bil á milli liðanna og verður fróðlegt að sjá hverju vindur fram í síðari háflleik. 

Skotnýting liðanna í hálfleik
Njarðvík:
Tveggja 50% – þriggja 35% og víti 75% 
Stjarnan: Tveggja 28% – þriggja 33% og víti 77%

Mynd/ [email protected] – Jón Orri Kristjánsson opnaði leikinn með troðslu! 

Fréttir
- Auglýsing -