HomeFréttirHálfleikstölur: KR leiðir með sex stigum

Hálfleikstölur: KR leiðir með sex stigum

 
Búið er að blása til hálfleiks í viðureign KR og Hamars í undanúrslitum Poweradebikarsins í kvennaflokki. Staðan í hálfleik er 37-31 KR í vil þar sem Chazny Morris er með 16 stig í liði KR en Jaleesa Butler er með 11 stig í liði Hamars.
Hvergerðingar byrjuðu betur í leiknum en KR-ingar tóku forystuna hægt og bítandi og settu rándýran þrist undir blálok fyrri hálfleiks og fóru tvíelfdar inn í leikhléið.
 
Nánar síðar…
 
Mynd/ Hafrún Hálfdánardóttir sækir að körfu Hamars í fyrri hálfleik
 
Fréttir
- Auglýsing -