Þrír leikir eru nú í gangi í Iceland Express deild karla og búið að blása til leikhlés í þeim öllum. Leikirnir marka endalok þrettándu umferð deildarinnar þar sem ÍR, Tindastóll og Stjarnan náðu sér í tvö góð stig í gærkvöldi.
Hálfleikstölur:
KR 59-48 Hamar
KFÍ 38-33 Grindavík
Keflavík 62-44 Snæfell
Úr Keflavík berast þau tíðindi að Lazar Trifunovic sé ekki í búning hjá Keflavík, hann ku víst enn vera að glíma við meiðsli og þá er Ryan Amoroso miðherji Hólmara búinn að leika í mýflugumynd í Toyota-höllinni í kvöld en hann mun vera að glíma við meiðsli í kálfa.
Nánar síðar…




