Kristófer Breki Björgvinsson hefur framlengt samstarf sitt við Hauka og skrifað undir nýjan tveggja ára samning við sitt uppeldisfélag.
Þetta eru mikil fagnaðarefni fyrir Hafnarfjarðarliðið sem stefnir ótrautt á sæti í Bónusdeildinni á næsta tímabili. Kristófer Breki átti við erfið meiðsli að stríða á síðasta ári en hefur náð fullum bata eftir stranga endurhæfingu. Hann sýndi frábæra takta með ungmennaflokki félagsins á dögunum þar sem hann átti stóran þátt í að tryggja liðinu titilinn, en hann hefur jafnframt verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og vakið athygli út fyrir landsteinana sem einn af efnilegustu leikmönnum Evrópu.
Pétur, þjálfari Hauka, fagnar því mjög að halda Kristófer innan raða liðsins og segir það stóran lið í þeirri stefnu félagsins að byggja á þeim sterka grunni og íslenska kjarna sem til staðar er á Ásvöllum. Haukastrákurinn er hæfileikaríkur lykilmaður sem á eftir að styrkja liðið mikið í baráttunni fram undan. Hjá Haukum er mikil ánægja með að tryggja krafta þessa eftirsótta leikmanns til næstu tveggja ára og halda áfram uppbyggingunni með uppöldum leikmönnum í fararbroddi.




