spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaHákon yfirgefur Hamar/Þór sem strax eru komnir með eftirmann hans

Hákon yfirgefur Hamar/Þór sem strax eru komnir með eftirmann hans

Hákon Hjartarson hefur beðist lausnar sem þjálfari Hamars/Þórs í Bónus deild kvenna. Staðfestir félagið þetta í tilkynningu á samfélagsmiðlum fyrr í dag.

Hallgrímur Brynjólfsson hefur samkvæmt tilkynningu tekið við þjálfun liðsins og mun stýra því út yfirstandandi tímabil ásamt Sævari Elí Kjartansyni.

Hallgrímur er nokkuð reyndur þjálfari sem þjálfað hefur hjá Njarðvík, Fjölni, Hamri og hjá yngri landsliðum Íslands.

Tilkynning:

Breytingar á þjálfarateymi meistaraflokks kvenna Hamars-Þórs.

Hákon Hjartarson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Hamar-Þór, hefur beðist lausnar frá störfum og hefur félagið orðið við þeirri beiðni.

Hallgrímur Brynjólfsson hefur tekið við þjálfun liðsins og mun stýra því út yfirstandandi tímabil ásamt Sævari Elí Kjartansyni, sem jafnframt starfaði sem aðstoðarþjálfari með Hákoni.

Meistaraflokksráð Hamars-Þórs færir Hákoni bestu þakkir fyrir hans framlag til félagsins Hann hefur unnið gríðarmikið og gott starf í uppbyggingu kvennakörfunnar á Suðurlandi og lagt mikilvægan grunn að áframhaldandi þróun liðsins.

Félagið óskar Hákoni velfarnaðar í framtíðinni og hlakkar til áframhaldandi samstarfs við Sævar Elí og Hallgrím á lokaspretti tímabilsins.

Áfram Hamar-Þór

Fréttir
- Auglýsing -