HomeBónus deildinBónus deild karlaHákon var frábær í sigrinum gegn KR ,,Vorum búnir að undirbúa okkur"

Hákon var frábær í sigrinum gegn KR ,,Vorum búnir að undirbúa okkur”

Það var rafmagnað andrúmsloft í Skógarselinu þetta fimmtudagskvöld þegar ÍR tók á móti KR í næstsíðustu umferð Bónus deildar karla. Þótt bæði lið væru þegar búin að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni, var mikið undir.

Baráttan um að tryggja sér sem hagstæðasta stöðu í töflunni fyrir úrslitin var allsráðandi, enda getur hvert sæti skipt sköpum þegar kemur að heimavallarrétti og andstæðingum í fyrstu umferð.Fór svo að lokum að ÍR vann leikinn eftir æsispennandi lokamínútur 102-99 og ljóst er að þeir ætla sér að koma á góðu róli inn í úrslitakeppnina.

Hérna er meira um leikinn

Karfan spjallaði við Hákon Örn Hjálmarsson leikmann ÍR eftir leik í Skógarseli. Hákon Örn var að öðrum ólöstuðum besti leikmaður vallarins í kvöld, setti 32 stig og var með 9 af 10 fyrir utan þriggja stiga línuna.

Fréttir
- Auglýsing -