HomeFréttirHairston og Tratnik í banni í kvöld

Hairston og Tratnik í banni í kvöld

Matthew Hariston og Igor Tratnik verða ekki með liðum sínum í lokaumferð Iceland Express deildar karla í kvöld en báðir hafa þeir verið dæmdir í eins leiks bann eftir framferði sitt í viðureign Tindastóls og Þórs í 21. umferð Iceland Express deildar karla.
 
Báðum var Hairston og Tratnik vikið út úr húsi í leiknum og tekur bann þeirra gildi í hádeginu í dag.
 
Hairston verður því ekki með Þór þegar liðið mætir Haukum í Hafnarfirði í kvöld og Tratnik verður ekki með þegar Njarðvíkingar mæta í Skagafjörðinn.
Fréttir
- Auglýsing -