Hvergerðingurinn Hafrún Hálfdánardóttir mun leika með Íslandsmeisturum KR í Iceland Express deild kvenna á næstu leiktíð en þetta staðfesti hún í samtali við Karfan.is. Hafrún er uppalin Hamarskona og segir að tímabært hafi verið að breyta til.
,,Ég fluttist til Reykjavíkur í vor og fannst tími kominn á breytingar. Ég valdi KR af því ég veit að þar er hörku prógramm og mér líst vel á Hrafn og stelpurnar. Ég horfði líka á þá staðreynd að KR vantaði leikmenn í mína stöðu,“ sagði Hafrún en Signý Hermannsdóttir landsliðsmiðherji hefur enn ekki ákveðið hvort hún muni leika áfram körfuknattleik og Unnur Tara Jónsdóttir er á leið erlendis í nám.
,, Auðvitað er það óvenjulegt að skipta yfir í liðið sem maður tapaði Íslandsmeistaratitlinum til á síðasta tímabili en ég lít á það þannig að síðasta tímabil er búið og ég horfi bara á það hvar ég muni bæta mig mest sem leikmaður þetta tímabil. Það var ekki auðveld ákvörðun að fara frá Hamri enda uppeldisfélagið mitt og margar góðar vinkonur mínar í liðinu. Mér mun alltaf þykja vænt um liðið en ég trúi að þetta sé rétt ákvörðun fyrir mig núna. Hlakka til að takast á við nýjar áskoranir hjá KR,“ sagði Hafrún sem gerði 3,3 stig og tók 4 fráköst að meðaltali í leik með Hamri á síðasta tímabili.
Ljósmynd/ Jón Björn – Hafrún í leik með Hamri gegn KR í DHL-Höllinni í Vesturbænum.



