Stjarnan hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frétta um félagaskipti Hilmis Arnarsonar frá Álftanesi yfir í Garðabæjarfélagið. Tilefnið er fréttaflutningur á Vísir.is þar sem því var haldið fram að Stjarnan hefði keypt leikmanninn.
Í yfirlýsingunni kemur fram að sú framsetning sé röng. Hilmir hafi átt ákvæði í samningi sínum við Álftanes um að hann gæti losnað gegn greiðslu ákveðinnar upphæðar. Stjarnan hafi greitt þá upphæð til að flýta fyrir ferlinu, en sá kostnaður verði dreginn af umsömdum kjörum leikmannsins á samningstímanum.
Stjórn deildarinnar segist hafa haft samband við fréttamann og fréttastjóra hjá SÝN til að fá fréttina leiðrétta en án árangurs. Þá sé það harmað að hvorugur þeirra hafi haft samband við Stjörnuna eða leikmanninn til að sannreyna upplýsingarnar áður en fréttin var birt.
Yfirlýsing Stjörnunnar í heild sinni:
Yfirlýsing – vegna frétta af félagaskiptum Hilmis Arnarsonar
Í gær birti visir.is frétt um félagaskipti Hilmis Arnarsonar frá Álftanesi yfir í Stjörnuna.
Vegna þeirrar fréttar viljum við koma á framfæri leiðréttingu, því þar er sagt að Stjarnan hafi keypt leikmanninn frá Álftanesi. Það er rangt.
Leikmaðurinn samdi við Álftanes um að greiddi hann ákveðna upphæð myndi hann losna undan samningi við félagið og gæti samið við annað lið
Stjarnan greiddi upphæðina inná reikning Ungmennafélags Álftaness og félagaskiptin ganga í gegn eins og um var samið.
Það var samkomulag að Stjarnan myndi greiða þessa upphæð til að flýta fyrir félagaskiptunum og kostnaður við þau verði dregin af umsömdum kjörum leikmannsins á samningstímanum.
Stjarnan vill ítreka að haft var samband bæði við þann sem skrifaði fréttina og yfirmann hans, Henry Birgi fréttastjóra hjá SÝN og bað þá að leiðrétta fréttina, en þeir töldu sig vera með undir höndum sannanir fyrir því að Stjarnan hafi keypt leikmanninn af Álftanesi.
Hvorki fréttaritarinn né Henry Birgir höfðu samband við Stjörnuna né leikmanninn til að sannreyna þá yfirlýsingu sem þeir halda fram í fréttinni.
Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar harmar svona fréttaflutning og að ekki skyldi hafa verið rætt við alla aðila málsins til að kanna heimildir, sérstaklega sökum þess að deildin hefur átt gott samstarf við starfsmenn SÝN sem hafa unnið kraftaverkastarf til að lyfta körfuboltanum á Íslandi á þann stall sem hann er nú þegar á.
Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar




