HomeÚti í heimiEvrópaHafði betur á Spáni

Hafði betur á Spáni

Kristinn Pálsson og félagar í Alicante lögðu Gran Canaria, lið Jóns Axels Guðmundssonar, 84–74 í spænsku Leb oro deildinni.  

Jafnt var í hálfleik, 41–41, en Alicante stakk af með góðum kafla í þriðja leikhluta og tryggði sér tíu stiga sigur á móti fyrsta tapi Gran Canaria á tímabilinu. Jón Axel skoraði níu stig, tók tvö fráköst og gaf eina stoðsendingu á 20 mínútum, á meðan Kristinn lék í 17 mínútur, skoraði fimm stig og nældi í einn stolinn bolta.

Fréttir
- Auglýsing -