HomeFréttirHafa náð að mynda alveg rosalega samheldni

Hafa náð að mynda alveg rosalega samheldni

Undir 16 ára landslið drengja í körfuknattleik heldur áfram að heilla á Norðurlandamótinu í Kisakallio í Finnlandi.

Í dag fagnaði liðið öruggum og afar sannfærandi sigri gegn Svíþjóð 76-103, en frammistaða strákanna var til fyrirmyndar frá upphafi til enda. Um var að ræða leik þar sem íslenska liðið reyndist hreinlega sterkara á öllum sviðum körfuboltans og keyrði yfir sænska liðið jafnt og þétt allan tímann.

Hérna er meira um leikinn

Karfan spjallaði við Sigurð Friðrik Gunnarsson aðstoðarþjálfara Íslands eftir leik í Kisakallio.

Fréttir
- Auglýsing -