Undir 16 ára drengjalið Íslands lagði Eistland í dag í þriðja leik sínum á Norðurlandamótinu í Kisakallio, 109-96.
Það sem af er hefur liðið því unnið tvo leiki og tapað einum, en næst eiga þeir leik á laugardaginn gegn Danmörku.
Karfan spjallaði við Gunnlaug Smárason aðstoðarþjálfara Íslands eftir leik.



