HomeFréttirGunnar: Virkar vel hjá KR að hafa ljósmyndara sem aðstoðarþjálfara

Gunnar: Virkar vel hjá KR að hafa ljósmyndara sem aðstoðarþjálfara

Gunnar Sverrisson er genginn í raðir KR eins og fram kom í gær og mun verða aðstoðarþjálfari hjá Helga Má Magnússyni í vetur. Gunnar þjálfaði ÍR tvö síðustu tímabil en KR og ÍR hafa löngum eldað saman grátt silfur og væntanlega einhverja rekið í rogastans þegar þessi tíðindi bárust af ljósmyndaranum Gunnari.
Hvað kom til að fara í KR? Er það ekki erkióvinurinn?
Eins og ég lét hafa eftir mér sl. vor þá var ég tilbúinn að þjálfa ÍR áfram, það er engin lygi, en báðir aðilar þurfa að vera sammála um það, stjórn og þjálfari. Ég er mjög ánægður að fá að vera í kringum úrvalsdeildina áfram og ég hlakka mikið til að fá að taka þátt í þessu hjá KR og aðstoða Helga Má sem kemur inn í sitt gamla félag með mikla og dýrmæta reynslu. Þegar Böðvar formaður hafði samband við mig fyrir helgi þá varð ég strax spenntur fyrir þessu verkefni því að fá að starfa í kringum úrvalsdeildina er afar skemmtilegt. Ég sagði við Böðvar að það virkaði vel hjá KR að hafa ljósmyndara sem aðstoðarþjálfara sbr. Pétur Pétursson í fótboltanum.
 
Hvernig líst þér á hópinn og möguleika liðsins á komandi tímabili?
Hópurinn hjá KR er virkilega góður. Góð blanda af ungum og efnilegum strákum og svo þeim sem eru eldri og reyndari. Allt frábærir leikmenn. Það er mikill happafengur fyrir liðið að fá þá Helga og Brynjar til baka og munu þeir vafalaust vera lykilmenn í vetur. Tel að þetta lið, þessi hópur eigi góða möguleika á að gera góða hluti og skemmta áhorfendum. Og ekki skemmir, að það vita það allir sem vilja vita að bakland og stjórn körfuknattleiksdeildar KR er afar metnaðarfull. Það er virkilega hvetjandi umhverfi að vinna í. Ég er virkilega þakklátur að fá þetta tækifæri og líst vel á hugmyndir Helga hvað varðar leik liðsins. Nú er bara byrja því það er stutt í fyrsta leik.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -