Gunnar Örlygsson er nýr formaður Körfuknattleiksdeildar UMFN en hann tekur við keflinu af Friðriki Ragnarssyni. Frá þessu er greint á heimasíðu Njarðvíkinga.
Fyrir sögufróða slæðast einnig kunnugleg nöfn inn í stjórn og varastjórn en Gunnar er formaður, Hreiðar Hreiðarsson er kominn inn í stjórn sem og Jóhannes Kristbjörnsson og Kristinn Einarsson í varastjórn en allir eiga þeir það sameiginlegt að hafa orðið Íslandsmeistarar með Njarðvíkurliðinu.