spot_img
HomeFréttirGunnar: Gríðarlega ánægður með strákana

Gunnar: Gríðarlega ánægður með strákana

 
,,Varnarleikurinn hefur verið veikleiki liðsins ansi lengi og ég hef oft sagt að stærsti hluti varnarinnar sé hugurinn og við höfum verið að vinna í því núna,” sagði vígreifur Gunnar Sverrisson þjálfari ÍR í samtali við Karfan.is eftir sigur Breiðhyltinga í Ljónagryfjunni í kvöld. Með sigrinum komst ÍR upp fyrir Njarðvík og skildi gestgjafa sína eftir í fallsæti ásamt KFÍ.
,,Þrátt fyrir áherslu okkar á varnarleikinn þá skora Njarðvíkingar 89 stig á okkur en við skoruðum meira og það er það sem gildir. Þetta hífði okkur aðeins upp í deildinni og vonandi verður áframhald á enda var þetta frábært,” sagði Gunnar og var ánægður með nýja leikmanninn James Bartolotta sem skoraði 32 stig í kvöld.
 
,,Hann er atvinnumaður fram í fingurgóma og þeir eru fljótir að komast inni í hlutina svo ég get sagt núna að hann sé draumasending. Annars var ég gríðarlega ánægður með strákana í kvöld og þeir vita hvað er búið að ganga á hjá okkur en einhvern veginn hefur andinn aldrei farið úr hópnum og það er að skila sér í dag,” sagði Gunnar sem gat ekki notast við Eirík Önundarson í kvöld sem horfði á leikinn af tréverkinu.
 
,,Eiríkur var kominn í sitt besta form á dögunum síðan hann var 18 ára að ég held og þá þurfti hann að fá lungnabólgu en ætti að vera klár í næsta leik.”
 
 
Fréttir
- Auglýsing -