Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Karfan.is mun Gunnar Einarsson mæta til leiks með liði Keflavíkur í kvöld þegar fjórða viðureign Keflavíkur og Tindastóls fer fram í TM-Höllinni í Reykjanesbæ.
Staðan í einvíginu er 2-1 Keflavík í vil og verður fróðlegt að sjá hvort einkaþjálfarinn nýtist á parketinu en hann var aðstoðarþjálfari hjá Hirti Harðarsyni áður en Friðrik Ingi Rúnarsson tók við liðnu.
Þetta verður í annað sinn sem Gunnar sportar Keflavíkurtreyju á Íslandsmótinu þetta tímabilið en hann var líka í leikmannahópi Keflavíkur í útileiknum gegn Snæfell sem Keflavík vann örugglega 75-97.
Og að sjálfsögðu hafa netheimar sitt um málið að segja:
@SveinnMolduxi @TindastollKarfa hann er í betra formi en 90% leikmanna Dominos deilar svo ég skil vel að Kári, the man the myth, sé með!
— Saevar Saevarsson (@SaevarS) March 24, 2017