Í vikunni var auglýsing Icelandair frumsýnd þar sem Jón Arnór Stefánsson hóf formlega "leikferil" sinn og óhætt að segja að hann hafi staðist prófið. Nú í gær var svo splæst í nýja auglýsingu þar sem Sara Rún Hinriksdóttir sýnir listir sínar og sýnir að orð eru jafnan óþörf þegar kemur að góðum leik. Auglýsingu Söru má sjá hér að neðan.



