Hekla á Hellu stóð fyrir 3 á 3 móti um síðustu helgi í tengslum við bæjarhátíðina Töðugjöld á Hellu.
Alls voru fimm lið sem að tóku þátt að þessu sinni þar sem allir spiluðu við alla og höfðu gama af.
Mótið gekk mjög vel í alla staði og að lokum stóðu Gullni Örninn uppi sem sigurvegarar. Í öðru sæti voru Bumban og Lithunica í því þriðja.
Aðstandendur mótsins vilja þakka styrktaraðilinum fyrir stuðninginn en þeir voru Ribsafari, Íshestar, Eldhestar, Fontana, Gallerí Pizza, Draugasafnið, Reykjagarður og Sögusetrið