Grindavík vann Hauka í gærkvöldi 70-82 í undanúrslitum Powerade-bikars karla. Leikurinn var í járnum allan tímann þar til á lokamínútunum þegar Grindavik seig fram úr og tryggði sér farseðil í Höllina. Mæta þeir KR sem vann Tindastól í hinni undanúrslitaviðureigninni.
Það var mikil stemning á Ásvöllum og stuðningsmenn beggja félaga mættu vel og studdu sín lið.
Leikurinn var jafn frá upphafi en fyrstu stigin komu frá leikstjórnanda Grindavíkur Kevin Sims. Haukarnir sem voru fullir sjálfstraust eftir að hafa verið á ágætu skriði í deildinni settu næstu sex stig og ætluðu að selja sig dýrt. Grindavik jafnaði sex-sex með tveimur körfum frá Kevin Sims og Páli Axeli Vilbergssyni. Jafnræði liðanna hélst út leikhlutann og staðan að honum loknum var 17-18 gestunum í vil.
Haukarnir voru sterkari aðilinn í upphafi 2. leikhluta. Þeir skoruðu fyrstu sjö stig leikhlutans og komust í 24-18. Þorleifur Ólafsson minnkaði muninn með tveimur vítum en næstu stig komu frá Haukum og leiddu þeir 29-20. Grindavík minnkaði muninn í 29-25 með körfum frá Kevin Sims og Páli Axeli. Staðan í hálfleik var 35-33 og allsvakalegur seinni hálfleikur framundan.
Svæðisvörn Hauka virkaði fínt en þeir beittu henni á köflum.
Grindvíkingar byrjuðu seinni hálfleik frábærlega með því að skora 9 stig gegn aðeins 2 frá Haukum og tóku forystuna. Héldu þeir henni fram í miðjan leikhlutann en þá komust Haukar yfir á ný og leiddu þeir með einu til tveimur stigum alveg fram í lokin á þriðja leikhluta þegar þeir juku munn í 5 stig 57-52.
Haukar voru sterkari á fyrstu mínútum fjórða leikhluta og höfðu frumkvæðið. En í stöðunni 62-59 kom frábær kafli hjá Grindavík þar sem þeir skoruðu 10 stig gegn einu og staðan 63-69. Eftir það náðu Haukar í raun aldrei að minnka muninn á ný og Grindavík vann að lokum góðan sigur 70-82.
Stigahæstur hjá Grindavík var Kevin Sims með 25 stig og næstur honum kom Páll Axel Vilbergsson með 21 stig en hann skoraði mikilvægar körfur á lokasprettinum.
Hjá Haukum var Semaj Inge með 26 stig og Gerald Robinson var með 13.
Myndasafn úr leiknum
Mynd: Páll Axel Vilbergsson og félagar fara annað árið í röð í Höllina – [email protected]





