20:41
{mosimage}
(Guðmundur og Guðjón Kristjánsson undirrita samninginn)
Eins og karfan.is greindi frá á dögunum reiknaði Guðmundur Jónsson leikmaður Njarðvíkur með því að ganga til liðs við Þórsara á Akureyri. Heimasíða Þórs greinir svo frá því í kvöld að Guðmundur hefur skrifað undir samning við Þórsara og mun flytja norður þann 1. ágúst.
Í viðtali við heimasíðu Þórs segir Guðmundur að hann komi úr umhverfi þar sem menn séu vanir að vinna titla og hann ætli að hjálpa Þór að vinna titla.
Fréttina í heild má lesa á heimasíðu Þórs.
Mynd: www.thorsport.is